fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Ég man nefnilega ekki betur en að ríkisvaldið hafi á sínum tíma margboðið Reykjavíkurborg fé til framkvæmda á miklu slysahorni á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík, og það hafi verið afþakkað. Umferðaröngþveitið sem þar er hefur nú ekki skánað með árunum. En, virðulegi forseti, ég er nú ekki svo forhertur áhugamaður um það kjördæmi sem ég er fulltrúi fyrir að ég hafi ekki áhuga á öðrum framkvæmdum í öðrum kjördæmum og þess vegna vil ég fagna því að gert er ráð fyrir vegarkafla á milli Hveragerðis og Selfoss í þessari samgönguáætlun.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um þá framkvæmd þar sem gert er ráð fyrir svokölluðum 2+1 vegi, sem ég hef nokkrar efasemdir um. Ég teldi rétt að úr því á annað borð væri verið að fara í þessar framkvæmdir ætti að gera þarna fullgildan tvöfaldan veg. Þess utan verð ég líka (Forseti hringir.) að lýsa yfir nokkrum vonbrigðum yfir því hversu seint eigi að fara í þessar framkvæmdir. Ég sé ekki betur en það verði að nokkrum árum liðnum.