fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Virðulegur forseti. Það er nákvæmlega það sem ég var að segja. Ég vildi að hv. þingmaður hefði hlustað aðeins betur á það sem ég sagði. Ég studdi ekki framkvæmdina við Bakka. Ég sat hjá. Ég sagði frá því í ræðu minni áðan, það var vegna þess að mér fannst málið of seint fram komið og það vantaði betri gögn til þess að undirbyggja það. Munurinn á þeirri framkvæmd og kostnaðinum við hana sem nú hefur hækkað um 1,2 milljarða án þess að byrjað sé á henni er sá að hinar framkvæmdirnar tvær sem ég hef verið mikill stuðningsmaður að, Vaðlaheiðargöng annars vegar og Landeyjahöfn, vegna þess að ég held að þetta séu jákvæðar og góðar framkvæmdir sem munu skila sér á endanum þótt þær hafi reynst dýrari þegar á hólminn var komið, hækkuðu við vinnsluna. Í Landeyjahöfn gerðu menn ráð fyrir að losa þyrfti um 25 þús. rúmmetra á ári. Reyndin hefur verið sú að menn hafa farið u.þ.b. 100 þúsund fram yfir. Það sem gerist síðan í Vaðlaheiðargöngunum er auðvitað eitthvað sem hefur gerst í öðrum göngum eins og Héðinsfjarðargöngunum, vatnsmagnið er meira en menn hafa gert ráð fyrir og það er ófyrirséð. Það er eðlilegt.
Það eina sem ég var að benda á er að þarna voru menn mjög á endasprettinum með að koma inn með mjög stórt mál sem þeir hefðu þurft að hafa tíma til þess að fara betur yfir, einmitt til að geta áttað sig á því að um grunn- eða frummat væri að ræða eða þetta væru mjög ónákvæm vísindi, að það þyrfti hugsanlega að skoða þetta aðeins betur.
Þegar við fáum þetta mál inn í samgöngunefnd á síðasta degi starfsáætlunar þá finnst mér vera hætta á sleifarlagi, hætta á mistökum, hætta á að mönnum yfirsjáist mikilvæg atriði. Það er auðvitað ekki boðleg framkoma við umhverfis- og samgöngunefnd að fá verkefni sem má telja að sé eiginlega eitt af meginverkefnum nefndarinnar, á síðasta degi starfsáætlunar. Mér finnst það vera lítilsvirðing við nefndina og mér finnst það vera (Forseti hringir.) lítilsvirðing við hv. formann nefndarinnar, Höskuld Þórhallsson.