144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

afgreiðsla umhverfis- og samgöngunefndar á frumvarpi um Reykjavíkurflugvöll.

[10:04]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Það var mikið fagnaðarefni að við skyldum ná að taka þetta mikilvæga mál út úr nefnd í morgun ásamt tveimur öðrum frumvörpum. Það er fullrætt að mínu mati og jákvæðar umsagnir bárust, bæði frá Akureyrarbæ og Fljótsdalshéraði. Sú hugmynd sem hv. þm. Katrín Júlíusdóttir kynnti hér áðan var kynnt í fjölmiðlum og sagt að yrði væntanlega að veruleika, að minnsta kosti yrði hún lögð til og meiri hluti nefndarinnar leggur þetta til. Þetta snýr að því að allir landsmenn fái að eiga fulltrúa við það borð sem ákveður um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Þetta er eina leiðin til að koma þessu mjög svo erfiða máli úr þeim vonda farvegi sem það hefur verið í undanfarin ár. Þetta þýðir að við fáum vonandi að greiða um það atkvæði á Alþingi. (Forseti hringir.) en ég ítreka að það er mikið fagnaðarefni að okkur skyldi hafa tekist að taka þetta mjög svo mikilvæga mál út úr nefnd í morgun.