afgreiðsla umhverfis- og samgöngunefndar á frumvarpi um Reykjavíkurflugvöll.
Virðulegi forseti. Eins og okkur hafi vantað enn eitt deiluefnið um hvernig Alþingi virkar eða öllu heldur virkar ekki. Nú finnst mér algjör óþarfi að fara í einhverja efnislega umræðu um tillöguna hér og nú vegna þess að það sem stingur í stúf eru vinnubrögðin sjálf, það eru vinnubrögðin. (HöskÞ: Það er ekkert að þeim.) Það er ekkert að þessum vinnubrögðum, segir hv. þingmaður. (Gripið fram í.) Trúði hv. þingmaður því raunverulega að þetta mundi ekki valda úlfúð? (HöskÞ: Að sjálfsögðu.) Trúði hann því virkilega þegar hann henti inn breytingartillögu af þessari stærðargráðu sem hann lætur síðan að sé ekkert stórmál, gefur mönnum einhverjar mínútur til þess að fara yfir breytingarnar, tekur síðan málið út og fær að sögn inn menn frá öðrum fundum til þess að gera það? Svona á þetta ekki að virka, virðulegi forseti.
Aðeins um ástandið eins og það hefur verið hérna upp á síðkastið. Það er auðvelt fyrir almenning að hneykslast á Alþingi þegar hann sér það sem á sér stað hérna í beinni útsendingu. En ef almenningur upplifði vinnubrögð meiri hlutans sem eiga sér ekki stað í þessari pontu yrði almenningur mun hneykslaðri á vinnubrögðum meiri hlutans en minni hlutans, það fullyrði ég alveg blákalt. Þetta gengur ekki, virðulegi forseti. Þetta gengur ekki. Við verðum að reyna að vinna saman (Forseti hringir.) alla vega að því hvernig við ætlum að vinna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)