verkföll í heilbrigðiskerfinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég vil byrja á því að svara þeirri spurningu sem til mín er beint hvort það sé mögulegt að setja lög á svona deilu. Auðvitað er það mögulegt. Svarið við þeirri spurningu er já, það hlýtur að vera mögulegt. Fordæmi eru fyrir því, það hafa verið sett lög á kjaradeilur. Í þeirri stöðu sem uppi er þá vil ég ekki útiloka neinn möguleika í dag, kemur einfaldlega ekki til greina, til þess er ástandið allt of alvarlegt, það þokar ekkert, samninganefndirnar ná ekki saman. Ég er meðvitaður um þá stöðu sem hv. þingmaður lýsir og er uppi í íslensku heilbrigðiskerfi varðandi sérhæft starfsfólk, en það er ekki einsdæmi. Það er ekki einsdæmi. Þetta er í rauninni staðan og þetta er verkefni sem heilbrigðiskerfi víðast hvar á Vesturlöndum glíma við, mönnun heilbrigðisþjónustunnar. Við erum ekki eyland í þessu efni.
Þegar nefndar eru þær launakröfur sem uppi eru og tekist er á um og vísað til þess að eitt af þeim atriðum sé m.a. kynbundinn launamunur, þá spyr maður sig líka hvernig því er mætt. Það eru rétt um tvö ár síðan gert var sérstakt átak í því að jafna kynbundinn launamun innan heilbrigðisstétta. Það var síðasta ríkisstjórn sem hafði forgöngu um það verkefni. (GuðbH: Fyrsta skrefið.) Þrátt fyrir það erum við enn með þessa kröfu uppi. Var þá ekki gengið nægilega langt? (GuðbH: Það var fyrsta skrefið.) Hvers vegna í ósköpunum treystu menn sér þá ekki til að ganga alla leið? Ég fullyrði að sú aðgerð gerði ekkert annað en að ýta undir og kynda undir átökum stétta, ekki bara í heilbrigðiskerfinu, heldur víðar í þjóðfélaginu um þau kjör sem boðin voru af opinberum aðilum. Þetta var algjörlega misheppnuð aðgerð, svo það sé sagt.