lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Örstutt framhald af seinustu ræðu minni. Hér var krísuástand 2009–2010 sem ekki ríkir nú nema kannski um þau umræðuefni sem ekki eru rædd hér, svo sem kjaramálin. Burt séð frá því greiði ég atkvæði gegn því að lengja þingfund, einfaldlega vegna þess að það er ekki fyrirséð hversu langur hann yrði. Hér hótaði hæstv. ráðherra því að hann ætti að vera til morguns. Ég þarf að mæta í hv. allsherjar- og menntamálanefnd í fyrramálið til að ræða höfundalög sem eru Pírötum mjög mikilvæg þannig að ég get ekki greitt atkvæði með ótímabundnum þingfundi. Ég hugsa að ég byrji að kvarta upp úr kl. 11 eða 12.
Ég greiði atkvæði gegn tillögunni fyrst og fremst af þeim sökum og sömuleiðis þeirri að ég er á móti því að við látum þetta einkenni vandamálanna sífellt þvælast fyrir okkur. Það eru til lausnir á þessum vanda sem við stöndum frammi fyrir núna hvað varðar störf þingsins. Við eigum að vera að ræða þær lausnir miklu alvarlegar en við gerum núna.
Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.