144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

um fundarstjórn.

[17:59]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við tölum stundum um virðingu Alþingis og við viljum gjarnan auka hana og bæta menninguna hér og annað slíkt. Þetta er gjarnan sagt á tyllidögum og þessi stjórnarmeirihluti meinar augljóslega ekkert með því sem hann segir. Til dæmis eru boðaðir nefndarfundir sem byrja klukkan átta í fyrramálið með gestum, það er verið að kalla til gesti til að ræða mál eldsnemma að morgni og það liggur ekki einu sinni fyrir hvort þau mál verði yfir höfuð afgreidd á þessu þingi. Mér finnst þetta bagalegt og mér finnst þetta illa farið með fólk, ef ég má svo að orði komast. Við eigum ekki að draga hópa af fólki inn í þetta leikrit sem hér stendur yfir. Þess vegna finnst mér, virðulegi forseti, að áður nefndarfundirnir byrja, vegna þess að það er fundað snemma í fyrramálið í öllum nefndum nema stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, öllum nefndum þingsins, eigi þessir málalistar að liggja fyrir, svo að við séum ekki (Forseti hringir.) að kalla fólk til að óþörfu eða til taka þátt í leikriti stjórnarmeirihlutans.