áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla.
Ég tel að vinna eigi að því að nýta þennan almenna byggðakvóta með öðrum hætti, bæði til þessara aðgerða og líka til að auka strandveiðar vegna þess að ég tel að það skili sér vel til byggðanna. Í vetur átti ég góðan fund með heimamönnum á Flateyri og á Þingeyri þar sem þessi tvö sjávarpláss stóðu frammi fyrir miklum erfiðleikum. Í dag er búið að ná samningum við aðila sem hafa sett af stað aftur vinnslu á Þingeyri og það hefur allt verið unnið með Byggðastofnun og þessu sérstaka aflamarki. Ég tel að það hafi heppnast vel, en ekki er enn þá alveg frágengið hvernig niðurstaðan verður á Flateyri.
Ég tel mjög mikilvægt, þegar verið er að vinna með þessum hætti að því að styrkja byggðirnar til sjálfsbjargar í framtíðinni, að þetta verði líka eitthvað sem skilur eitthvað eftir sig á stöðunum til uppbyggingar og þá þarf að reyna að fá heimamenn með í það, að það séu ekki einhverjir utanaðkomandi aðilar sem fari bara einn daginn og þá standi sjávarplássið jafn illa sett og það gerði þegar einhver svona aðgerð var gerð með aðstoð Byggðastofnunar. Ég held að við verðum að læra af þeim mistökum sem hafa verið gerð í þeim efnum, að reyna að vinna að því að einhver arður og uppbygging verði á þeim stöðum en ekki sé eingöngu verið að styrkja utanaðkomandi aðila sem koma inn með vinnslu eða veiðar og fari svo einn góðan veðurdag og þá þurfi allt að fara á byrjunarreit. Ég tel að Byggðastofnun sé að vinna þetta öðruvísi en verið hefur og tel það af hinu góða. En ég tel að það sé svo margt sem við höfum lært af reynslu þessa kvótakerfis að við ættum að hafa nóg í handraðanum til að breyta og gera betur.