144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla.

775. mál
[21:40]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég orða það þannig að ég mundi ekkert tapa svefni yfir því þó að menn vildu gefa þessu meiri tíma. En það er ekki mjög oft sem menn detta niður á lausnir sem virka kannski betur en menn áttu von á, vegna þess að þetta var lausn sem var slegin af þegar menn voru að ræða hana sem leið til þess að draga úr bylmingshöggi sem menn sáu auðvitað fyrir strax í upphafi að gæti gerst. Allt gekk það eftir.

Varðandi skelbæturnar þá eru tíu, tólf ár, ef ég man rétt, frá því að þær hófust. Og það er ekki hægt að ætlast til þess, eða er það, hv. þingmaður, að ef einhver útgerðarflokkur sætir búsifjum, þegar auðlind hverfur kannski eins og má segja að hafi gerst í þessu tilviki að þá sé skaðinn bættur áratugum síðar? Ég lít svo á, og það hefur komið fram í mínu máli, að sá pottur sem við ræðum hér um hafi tvíþætt hlutverk, annars vegar að slá betur stoðum undir þessi litlu, dreifðu samfélög á ströndinni og hins vegar að gefa okkur tækifæri til þess að koma til aðstoðar þegar það verða skyndileg áföll. Jú, það var skyndilegt áfall með skelina, fyrirvaralítið, mig minnir meira að segja að fiskifræðingar eða þeir sem fylgdust með hafi ekki alveg séð það fyrir hvernig þetta gerðist. Og þá er um að ræða skyndilegt áfall. Þá kemur kerfið með sinn alabastursbuðk og við rjóðum smyrsli á sárið. En við gerum það ekki endalaust og þetta er kannski búið að ganga dálítið lengi. Þar að auki fann ég á máli hv. þingmanns í dag að hann hefur skoðað þetta mál og hann er ekki alveg viss um að andlagið sé rétt alls staðar. Ég er bara að segja að þarna voru kannski einhverjar útgerðir sem ekki áttu að slæðast með í þennan hóp.