144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

áætlun um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla.

775. mál
[22:45]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er rétt að aðdragandinn varðandi kvótakerfið verður ekki ræddur í stuttum andsvörum. Það er rétt að þessi reiði kom mikið til af því að ákveðnum aðilum var úthlutað kvóta miðað við þriggja ára veiðireynslu. Það er aflahlutdeild, ákveðin prósenta af viðkomandi fiskstofnum. Seinna kom framsalið sem þýddi að viðkomandi gátu selt kvótann öðrum aðilum. Þeir gátu fengið peninginn fyrir það og jafnvel farið út úr greininni með peninginn en skuldirnar sátu eftir. Um leið var kerfinu meira og minna lokað sem þýddi að þeir sem vildu vera á smábátum eða öðru og höfðu ekki nægilegan kvóta urðu að sækja sér kvóta til þeirra sem áttu meira af honum. Fénýtingin á kvótanum var frá öðrum en þeim sem eiga auðlindina. Þetta er það sem veldur þessari reiði og óánægju og er viðkvæmasti hlutinn í kvótakerfinu, en hefur aldrei tekist að snúa ofan af, enda er búið að færa þetta út í allt samfélagið einu sinni með því að búa til verðmæti, með því að búa til markað um þennan óveidda fisk í sjónum.

Þá kemur deilan um hvernig við getum náð því inn aftur, breytt skipulaginu og gert þetta öðruvísi. Það er það sem hefur verið togast á um. Upp hafa komið ýmsar tillögur, m.a. um að þetta sé atvinnuréttur sem þurfi aðlögun. Á síðasta kjörtímabili varð umræða hér um að búinn yrði til pottur, þ.e. hluti, sem yrði leigumarkaður sem væri allt að 20% aflaheimilda þar sem menn gætu farið inn á markaðinn og leigt, tekið sérstaklega fram, fengið nýtingarrétt bara fyrir það ár eða til tiltekins skamms tíma og nytjað þá fiskinn. Þar var fyrst og fremst verið að tala um nýtingarleyfi af auðlind sem þjóðin á. Þannig get ég alveg hugsað mér að þetta hafi þróast eins og ég var að tala um áðan, að þegar aftur kæmi aukning inn í kerfið færu menn að feta sig í þessa átt.

Sú leið sem við í Samfylkingunni höfum verið með sem tillögu hefur aftur á móti verið um að taka gjöldin í gegnum (Forseti hringir.) tilboðskerfið. Ég get komið inn á það í seinna andsvari.