144. löggjafarþing — 117. fundur,  2. júní 2015.

störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vildi gera að umtalsefni stöðu mála í því sem lýtur að gjaldeyrishöftunum og uppgjöri þrotabúanna hér í landinu. Þar er undir sem kunnugt er stærsta einstaka hagsmunamál þjóðarbúsins. Það veldur vaxandi áhyggjum hversu oft málið frestast hjá ríkisstjórninni, fyrst ár frá ári, síðan mánuð frá mánuði, síðan viku frá viku og nú frá ríkisstjórnarfundi til ríkisstjórnarfundar. Hér eru undir svo gríðarlega miklir fjárhagslegir hagsmunir og trúverðugleiki stjórnvalda varðar okkur og hagsmuni okkar allra svo miklu að það verður að kalla eftir því að þær áætlanir og áform sem sett eru fram standist, að málum sé fylgt eftir af festu, að dagsetningar haldi og leitast sé við að skapa samstöðu í þinginu, haft samráð við alla stjórnmálaflokka, hugmyndir kynntar vel og að þær séu á tryggilegum grunni reistar. Það hefur verið viðleitni af hálfu allra flokka í þinginu til þess að standa saman á bak við þetta frá því við komum hér inn í þingið og settum lög sem tóku þessar eignir inn undir gjaldeyrishöftin og sköpuðu okkur á síðasta kjörtímabili þá stöðu sem við höfum til að semja um uppgjör þrotabúanna. Það er gríðarlega mikilvægt að menn hefji sig upp yfir flokkspólitíska hagsmuni í þessu máli, en líka að þeir séu ekki sífellt að gefa nýjar yfirlýsingar um nýjar tímasetningar sem ekki standast því það er gríðarlega áríðandi að það haldi sem sagt er og gert er í jafn mikilvægu hagsmunamáli og hér er á ferðinni.