144. löggjafarþing — 118. fundur,  3. júní 2015.

störf þingsins.

[10:06]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Á sömu nótum langar mig að tala um almannatryggingakerfið en þó ekki um upphæðir, læt þá ræðu duga sem hér var flutt af hv. 3. þm. Reykv. s. um upphæðir. Á síðasta þingi hafði sá sem hér stendur áhuga á því að kynna sér nákvæmlega hvernig almannatryggingakerfið virkaði og sérstaklega aftengingin sem átti sér stað árið 2009, sem hv. 3. þm. Reykv. s. nefndi hér áðan. Svarið sem ég fékk á þskj. 975 á síðasta löggjafarþingi, 143. þingi, var á rúmlega fimm blaðsíðum og þá fyrst fékk ég smjörþefinn af því hversu flókið kerfið er. Ég lagðist yfir svarið, eyddi þó nokkrum tíma í að reyna að skilja það til hlítar. Ég er ekki fullkomlega sannfærður um að ég skilji það enn þá til hlítar, því meira sem ég reyni að læra um almannatryggingakerfið, því betur sé ég hversu óheyrilega flókið það er. Það er svo flókið að ég þori að fullyrða að enginn skilji það til hlítar. Þegar svo er búið um málin er réttarvernd skjólstæðinga almannatryggingakerfisins mjög erfið, jafnvel ómöguleg. Þegar við fáum kvartanir frá hæstv. öryrkjum og ellilífeyrisþegum sem oft hafa samband við okkur þingmenn þá langar mann að hjálpa, maður reynir að hjálpa, maður reynir að skilja málin en það er bara mjög erfitt, ef það er þá mögulegt á annað borð. Maður veit ekki hvernig maður á að ráðleggja fólki. Maður veit ekki hvernig maður mundi breyta kerfinu til hins betra. Það að ausa peningum í það held ég að mundi ekki leysa mjög mikið fyrir mjög marga á meðan kerfið er svo óheyrilega flókið.

Þess vegna langaði mig að vekja athygli á því að ofboðslega flókin kerfi gera réttarvernd mjög erfiða. Þegar við lítum fram á veginn þá er mikilvægt að við höfum það í huga að fólk þarf að skilja að hverju það gengur, það þarf að skilja að hvenær á því er brotið, hvenær einhver mistök hafa átt sér stað. Það þarf að vita hvernig það á að bregðast við. Það er ekki hægt á meðan kerfin eru of flókin.

Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.