störf þingsins.
Herra forseti. Mig langar í ljósi þess máls sem við vorum að ræða í þinginu í gær að fara aðeins yfir Menntamálastofnun, sem er verið að ræða í allsherjar- og menntamálanefnd að eigi að gera að lögum. Ég vil vitna til bréfs sem mennta- og menningarmálaráðherra barst frá umboðsmanni Alþingis þar sem kemur fram að umboðsmaður hafi ákveðið sjálfur að spyrja ráðherra um málið, í ljósi þess að hann fékk bréf frá einum starfsmanni Námsgagnastofnunar um að gera ákveðna könnun á því með hvaða hætti unnið hafi verið að þessum breytingum. Umboðsmaður segir um efni bréfsins, með leyfi forseta:
„Þar kemur fram að af þeim gögnum sem umboðsmaður hefur fengið afhent verði ráðið að starfsemi, skipulag og húsnæðismál Námsmatsstofnunar og Námsgagnastofnunar, undir stjórn sameiginlegs forstöðumanns, taki nú þegar að ýmsu leyti mið af hinni áformuðu sameiningu stofnananna og starfsemi fyrirhugaðrar Menntamálastofnunar þrátt fyrir að lagafrumvarp um þá breytingu og þar með lögbundin verkefni þessara stofnana hafi ekki hlotið samþykki Alþingis.“
Það má bera þetta saman við Fiskistofumálið, þetta er ekki ólíkt.
Af þessu tilefni langar mig til þess að lesa spurningar umboðsmanns til ráðherra því ég held að við sem sinnum hér löggjafarstörfum þurfum að velta því vel fyrir okkur hvað þarf að hafa í heiðri og huga, með leyfi forseta:
„1. Ég óska eftir að gerð verði grein fyrir því á hvaða lagagrundvelli mennta- og menningarmálaráðherra taldi heimilt að gera samkomulag frá 10. nóvember 2014 um forstöðumann Námsgagnastofnunar og um þau efnisatriði sem þar koma fram. Ég óska jafnframt eftir að fram komi hver var aðdragandi þess að samkomulagið var gert.
2. Ég óska eftir að gerð verði grein fyrir á hvaða lagagrundvelli störf þriggja/fjögurra starfsmanna mennta- og menningarmálaráðuneytisins hafa verið flutt til Námsmatsstofnunar.“
Í þriðju spurningunni óskar umboðsmaður eftir að fá nánari skýringu varðandi þau störf sem flutt hafa verið nú þegar til Námsmatsstofnunar og tengjast tilteknum verkefnum að sögn.
Virðulegi forseti. Það er lögmætisreglan sem endurspeglar ákveðna verkaskiptingu milli löggjafarvaldsins, þingsins og framkvæmdarvaldsins, stjórnsýslunnar sem ráðherrar fara fyrir. Umboðsmaður vekur athygli Alþingis á að í því frumvarpi sem við fjöllum hér um og er á dagskrá dagsins í dag er lagt til að (Forseti hringir.) ráðherra fái almenna lagaheimild til að kveða á (Forseti hringir.) um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir nema á (Forseti hringir.) annan veg sé mælt í lögum. Þessi atriði kunna að hafa þýðingu ef flutningur (Forseti hringir.) starfsstöðvar Námsmatsstofnunar á að koma til framkvæmda áður en (Forseti hringir.) Alþingi hefur tekið afstöðu til málsins, virðulegi forseti. Þess vegna er ótækt (Forseti hringir.) að þetta mál um Stjórnarráðið sé á dagskrá í dag.