störf þingsins.
Herra forseti. Undanfarna daga hafa um 45 þús. manns skrifað undir áskorun um að vísa til þjóðaratkvæðagreiðslu öllum lögum sem mynda heimild til lengri tíma en eins árs varðandi fiskveiðiauðlindina, á meðan ekki er tryggt ákvæði um þjóðareign á auðlindinni í stjórnarskrá. Þegar svo ríkur þjóðarvilji hefur komið fram höldum við áfram að hafa á forgangslista mál eins og makrílinn, þar sem ráðstafa á makríl, nýrri tegund, til næstu sex ára, afhenda hann núverandi aðilum sem veitt hafa makríl undanfarin ár og veita framsal á þessari nýju tegund.
Komið hefur fram að við erum með fjölda mála á dagskrá sem þjóðin leggst alfarið gegn, en samt ætla menn að setja hausinn undir sig og halda áfram að reyna að koma þessum málum í gegn, hvort sem það er mál eins og við ræðum um núna, um Stjórnarráðið, sem hefur engan tilgang inn í næstu mánuði, ekki nokkurn. Eins er með makrílfrumvarpið, það hefur engan tilgang inn í næstu mánuði. Og breytt rammalöggjöf hefur heldur engan tilgang inn í næstu mánuði, brennivín í búðir, það hefur engan tilgang inn í næstu mánuði. Svo mætti áfram telja.
Framsóknarmenn koma hér upp og hrósa sér af því að þeir hafi eiginlega fundið upp töluna 300 þús. kr. og það hafi verið samið undir þeirra verndarvæng og að nú séu frumvörp á leiðinni inn í þingið til stuðnings því. Ég held að framsóknarmenn ættu þá að beita sér fyrir því að breyta þeirri dagskrá sem liggur fyrir og taka þessi brýnu mál til umræðu, húsnæðismálin, fyrir unga fólkið í landinu og húsnæðisbætur. (Forseti hringir.) Nei, áfram skal stinga hausnum í sandinn og þjösnast áfram með mál sem ekki er nein brýn nauðsyn að afgreiða og þjóðin vill ekki sjá afgreidd hér.