störf þingsins.
Hæstv. forseti. Að gefnu tilefni langar mig að ræða aðeins stöðu framhaldsskóla á Norðurlandi. Ég verð að segja að mér finnst ekki rétt að fylla fólk á því svæði óöryggi með ítrekuðu umtali um að verið sé að fara að þeim skólum, það eigi að sameina þá og leggja niður skóla. Í síðustu viku var hæstv. menntamálaráðherra á ferð um Norðausturkjördæmi og hitti þar sveitarstjórnarmenn og forustumenn skóla og fór yfir það sem fram undan er. Það er alveg ljóst að við erum að fara að stytta nám til stúdentsprófs í þrjú ár og það þýðir að fækka mun um 4 þús. nemendur í framhaldsskólakerfinu. Við því verður auðvitað að bregðast. Við erum í þeirri stöðu að vera með fámenna framhaldsskóla sem hafa staðið sig afskaplega vel í þeirri viðleitni sinni að veita nemendum sem besta menntun, og svo verður áfram.
Það er hins vegar samdóma álit allra sem að þessum skólum standa að það þarf að bregðast við þessum nýju aðstæðum og menn eru svo sannarlega tilbúnir að ræða með hvaða hætti sé best að koma hlutunum þannig fyrir að námsgæði og sá „standard“, afsakið slettuna, sem við setjum varðandi stúdentspróf haldi sér þrátt fyrir að ekki verði sami fjöldi í skólunum. Jafnframt hlýtur starfsmönnum að fækka.
Sveitarstjórnarmenn og skólameistarar á Norðurlandi hafa sagt að þeir séu tilbúnir að leita leiða til þess að vinna að sem bestum framgangi náms á Norðurlandi án þess að til sameiningar komi.