Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Eins og ég kom að í ræðu minni líst mér ekki á þetta og ég held að það sé í rauninni engum til gagns. Mér finnst með þessum breytingum, og fleiri breytingum sem menn eru að tala um á öðrum lögum, eins og verið sé að reyna að komast hjá því að koma með málin inn á Alþingi, að verið sé að reyna að komast hjá því að taka rökræðuna við þingmenn. Það er ekki gott.
Síðan höfum við náttúrlega skýrt dæmi fyrir framan okkur með Fiskistofu þar sem bara það að segjast ætla að gera þetta hefur veikt stofnunina og hún er ekki eins fær um að sinna hlutverki sínu. Það er líka mjög alvarlegt mál þegar um er að ræða mikilvægar stofnanir. Það hefur ekkert með það að gera hvort það er gott að búa á Akureyri eða ekki eða hvað. Þetta er hvorki faglegt né lýðræðislegt, þetta er ekki mannúðlegt, það er ekki umhyggja þarna á ferðinni.
Það er hægt að gera þessa hluti. Það á auðvitað að vera hægt að færa til stofnanir og það á að fara eftir aðstæðum og það á að vera gulltryggt með góðum rökum. Það þarf að gera með umhyggju fyrir starfsmönnum. Ég átti þess kost að fylgjast með breytingunum sem voru á skrifstofunum sem heyra undir ríkisskattstjóra og ég leyfi mér að fullyrða að það hafi verið farið að því einmitt með þetta í huga, það var alltaf hugsað út frá því að það eru starfsmennirnir sem gera stofnunina að því sem hún er og þess vegna verður að halda vel utan um þá.