144. löggjafarþing — 118. fundur,  3. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[11:17]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Við fengum á sínum tíma lista yfir forgangsmál ríkisstjórnarinnar sem innihélt 74 mál, þar af 4 sem ekki hafa enn komið til þings.

Mér til gamans tók ég saman nokkrar tölur. Það eru 85 mál sem eru útistandandi frá hæstv. ríkisstjórn. Það eru 140 mál sem ríkisstjórnin hefur lagt fram og mun leggja fram samkvæmt þessu, þ.e. 136 mál sem hafa komið fram og 4 sem eru eftir.

Sá forgangslisti sem hæstv. ríkisstjórn hefur lagt fram samanstendur af meira en helmingi allra mála sem ríkisstjórnin hefur og mun leggja fram á þessu þingi, þ.e. hún ætlar sér að taka tæpan helming frá september til júní og afgreiða rétt rúmlega helminginn, sem þó eiga að heita forgangsmálin, í júní, í dag eða á morgun eða hvað, maður veit ekki, þetta er staðan sem við erum í.

Og ég verð að taka undir með hv. þingmanni sem hér talaði áðan að minni hlutinn hefur verið ótrúlega gjafmildur á tíma ríkisstjórnarinnar upp á síðkastið.