Stjórnarráð Íslands.
Forseti. Mér reiknast svo til að það sé fimmti í þinghléi, ef svo má að orði komast. Það eru tíu dagar síðan virðulegur forseti kvaddi sér hljóðs og sum okkar héldu í bernsku sinni að hann ætlaði að koma með einhverja dagskrá um það hvernig ljúka mætti þingstörfum en í staðinn henti hann hingað inn sprengju þar sem hann sagðist taka starfsáætlun úr sambandi og væri ekki með neina áætlun um hvernig ætti að klára þessi mál.
Síðan hefur komið í ljós á fundum með forustumönnum ríkisstjórnarflokkanna að þeir eru með yfir 70 forgangsmál. Sagði ekki einhver að við hefðum klárað um 55 mál frá ríkisstjórninni í allan vetur og nú koma þeir fimmta í þinghléi og segja: 70 mál, klára þau strax? Þetta er náttúrlega ekki boðlegt, virðulegur forseti.