Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég ætla að leggja hér í púkkið mitt mat á stöðunni og hæstv. forseti ræður svo sem hvað hann gerir við það. En ég met það þannig að staðan sé sú að hæstv. forseti sé að bíða allt of mikið eftir hæstv. forsætisráðherra og aðhafist því lítið. Ég held hins vegar að hæstv. forsætisráðherra beri ekkert skynbragð á það hvernig þingið þarf að starfa, hann ber ekki virðingu fyrir þinginu og hefur ekki það raunsæi til að bera til að hafa nokkuð uppbyggilegt fram að færa í því hvernig við eigum að semja um þinglok.
Ég vil skora á hæstv. forseta að hætta að bíða eftir forsætisráðherra. Ég held að hæstv. forsætisráðherra sé einfaldlega búinn að spila sig út í horn. Hann er ekki gjaldgengur í viðræðum flokkanna og ég fer fram á að þeir formenn sem geta hittist á fundi og haldi áfram með samræðurnar sem hófust á mánudaginn. Mér er alveg sama hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður á þeim fundi eða ekki, ég held að það væri ekkert verra ef hann væri ekki á þeim fundi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)