Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Hér var löggjafarsamkundan um tíu ára skeið undir hæl forsætisráðherra og það virðist sem sú staða sé komin upp aftur að þetta þing sé undir hæl hæstv. forsætisráðherra. Ég hef spurningu til hæstv. forseta: Er það með vitund hans og vilja að í að minnsta kosti sumum nefndum þingsins virðist vera beitt meðvituðu ofbeldi til að koma í veg fyrir að tillögur, sem svo vill til að stjórnarandstaðan flytur en njóta fulltingis allra umsagnaraðila, eru ekki einu sinni teknar á dagskrá? Heldur hæstv. forseti að það séu vinnubrögð sem eru líkleg til að greiða fyrir þingstörfum?
Hér hafa komið þingmenn stjórnarliðsins, t.d. nokkrar þingkonur Sjálfstæðisflokksins, og talað um nauðsyn þess að taka upp ný vinnubrögð en svo taka þær þátt í því, sem er alger nýbreytni á þessu þingi, að minni hlutinn í nefndum þingsins er beittur því ofbeldi að tillögur hans eru ekki einu sinni ræddar.