Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Hvorki ríkisstjórnin né hæstv. forseti eru með nokkra áætlun um það hvernig á að ljúka þessu þingi. Menn eru ekki heldur með neina áætlun um það hvaða málum þeir vilja ljúka. Það sést best á því sem gerðist til dæmis í fyrradag í umhverfis- og samgöngunefnd þegar menn ákváðu að rífa þar út mál, greinilega í ágreiningi við samstarfsflokkinn, og svo kom andstaðan fram við málið eftir á. Svona lagað fer að gerast þegar engin stjórn er á málum og ekki er vitað hvernig menn ætla að halda áfram með þingstörfin, þá gerast svona hlutir. Tíma okkar og orku er ekki vel varið á þennan hátt, auk þess sem þetta kemur mjög niður á ásýnd starfa okkar.
Ég tel að forseti ætti núna að viðurkenna ósigur í þessu öllu saman, setja niður fundaáætlun, nýja starfsáætlun sem við getum starfað eftir (Forseti hringir.) næstu vikurnar, og setja líka niður fundaplan því að það gengur ekki að nefndirnar séu að funda hver ofan í aðra.