144. löggjafarþing — 118. fundur,  3. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[11:45]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég verð strax að leiðrétta eitt í máli hv. 4. þm. Suðurk., Unnar Brár Konráðsdóttur, þegar hún talar um fyrirmyndarstjórn virðulegs forseta í þinginu. Virðulegur forseti hins háa Alþingis hefur enga stjórn á þinginu. Hæstv. forsætisráðherra hefur tekið það í gíslingu.

Hvað varðar fjölda mála sem hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir kom einnig inn á er það þannig með þennan forgangslista að hann er titlaður forgangslisti. Ég veit ekki hvað aðrir telja forgang en þegar menn setja eitthvað í forgang eru þeir að setja það fram fyrir annað, vegna þess að þeir vilja passa að það sé á undan einhverju öðru. Forgangslistinn samanstendur af meira en helmingi allra mála sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á þessu þingi. Það er enginn forgangslisti. Núna er formlegum starfstíma þingsins lokið og ef þetta eru forgangsmál, hvers vegna erum við þá að ræða mál sem eru í ágreiningi frekar en þau fjölmörgu mál sem sátt er um og við gætum verið að kýla í gegn, hvert á fætur öðru? (Forseti hringir.) Hvers vegna? Jú, vegna þess að virðulegur forseti hefur ekki stjórn á þinginu. Hann ræður ekki neinu hér. Það er hæstv. forsætisráðherra. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )