144. löggjafarþing — 118. fundur, 3. júní 2015.
Stjórnarráð Íslands.
434. mál
Varðandi spurningu hv. þingmanns held ég að hv. þingmaður viti svarið. Forseti reyndi að setja mál á dagskrá sem voru óumdeild. Sum þeirra fengu sæmilega framgöngu í umræðunni en öllum er ljóst að það urðu miklar umræður sem málin gáfu í sjálfu sér ekki tilefni til og við þekkjum það, fyrr og síðar, að þannig háttar til við þessar aðstæður þegar ekki er búið að finna niðurstöðu.