Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Ég tek nú bara undir hvert orð sem hv. síðasti ræðumaður flutti. Varðandi nefndastörf og það að ég skynja líka ákveðna uppgjöf í því ef hæstv. forseti telur að það skipti engu máli hvaða mál eru hér á dagskrá, að í þeim verði talað út í hið óendanlega. Ég er ekki sammála því. Ég gerði til dæmis ráð fyrir því að mál úr allsherjar- og menntamálanefnd sem eru búin að vera hér sífellt aftast á dagskránni yrðu færð framar, meira og minna sameiginleg nefndarálit þar sem við hefðum getað komist að einhverju samkomulagi. Ég er ekki að halda því fram að ekki hafi verið talað nokkurn skapaðan hlut í þeim, alls ekki, en ég fullyrði að við hefðum getað að minnsta kosti afgreitt einhver þeirra inni í nefnd sem við þurfum að gera aftur í staðinn fyrir að koma hér með mál sem vitað var frá fyrri umræðu þess að væru í ágreiningi og yrðu í ágreiningi og flestir sem tala eru ekki sáttir í því, þ.e. af hálfu stjórnarandstöðunnar. Mér finnst því ákveðin uppgjöf vera í því fólgin að halda að það skipti ekki máli hvaða mál eru sett á dagskrá þingsins.