144. löggjafarþing — 118. fundur,  3. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[12:23]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í grunninn er ég mjög hlynntur valddreifingu og það er eitt af þeim grundvallarverkefnum sem ég hef til hliðsjónar hér og mundi gjarnan vilja að eitthvert langtímaferli væri í gangi um það hvernig staðsetningu stofnana væri háttað. Það er einnig rétt, sem hv. þingmaður nefnir, að mörg störf þurftu áður að vera á tilteknum stað vegna þess að þar var fólkið, en það er ekki endilega tilfellið lengur. Margt er hægt að gera með aðstoð netsins og tækninnar sem ekki var hægt áður.

Aftur á móti eru aðrar stofnanir sem geta ekki flust á þeim forsendum. Gott dæmi er Tryggingastofnun, sem þarf mikið að eiga við skjólstæðinga sem geta ekki ferðast auðveldlega, jafnvel lítið sem ekki neitt. Þá er mjög mikilvægt að stofnunin sé einfaldlega þar sem flest er af fólki eða flest er af fólki sem er hreyfihamlað og þarf mest að nota þjónustuna. Þar er skjólstæðingahópurinn þannig að ekki er endilega hægt að gera allt yfir netið, þar þarf fólk að komast á staðinn, ýmist til þess að tala eða rífast við starfsfólk eða hvað svo sem fólk þarf að gera í samskiptum sínum við Tryggingastofnun ríkisins.

Það eru mjög margar ástæður á bak við hverja lögmæta og málefnalega ákvörðun að mínu mati. Þetta er eitthvað sem ætti heima í sérbúnu verkefni sem stefndi að tilteknum markmiðum. Eitt mjög lögmætt og gott markmið að mínu mati væri til dæmis valddreifing. Annað væri uppbygging landsbyggðarinnar. Og síðast en ekki síst að þjónusta stofnunar sé nógu góð fyrir alla sem að henni koma.

Eins og ég segi, það er hægt að nota tæknina mjög mikið, en það þarf að skoða þetta allt út frá tilteknum forsendum öðrum en einfaldlega þeim að auðveldara sé fyrir ríkisstjórnina að færa stofnanirnar. Það er eina markmiðið sem ég sé með þessu frumvarpi og það kemur fram í samantekt, (Forseti hringir.) eina markmiðið er að auðvelda ríkisstjórninni lífið. Mér finnst það ekki vera lögmætt markmið.