Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum ræðuna. Hér hefur verið talað um nokkrar stofnanir, Fiskistofu og fleiri. Við sitjum bæði í allsherjar- og menntamálanefnd og höfum gagnrýnt málsmeðferð hvað það varðar að sameina Námsmatsstofnun og Námsgagnastofnun í Menntamálastofnun, hvernig að því hefur verið staðið.
Mig langar, með leyfi forseta, að vitna í umboðsmann Alþingis, sem hefur ákveðið að taka upp sjálfstæða skoðun á því máli. Hann gerði athugasemdir við það þegar ákveðið var að vinna að flutningi Námsmatsstofnunar úr því húsnæði sem það er í núna, að Víkuhvarfi í Kópavogi, í hús Námsgagnastofnunar, og vitnaði í hæstaréttardóminn sem líka er notaður í frumvarpinu.
Mig langar, með leyfi forseta, að lesa hér upp:
„Lögmætisreglan endurspeglar ákveðna verkaskiptingu milli löggjafarvaldsins, þ.e. Alþingis, og framkvæmdarvaldsins, þ.e. stjórnsýslunnar sem ráðherrar fara fyrir.“
Af þessu tilefni er einnig ástæða til að vekja athygli á því, segir umboðsmaður, að fyrir Alþingi liggur nú lagafrumvarp þar sem lagt er til að ráðherra fái almenna lagaheimild til að kveða á um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir nema á annan veg sé mælt í lögum. Þessi atriði kunna að hafa þýðingu ef flutningur starfsstöðvar Námsmatsstofnunar á að koma til framkvæmda áður en Alþingi hefur tekið afstöðu til málsins.
Umboðsmaður er hér með spurningar til ráðuneytisins sem það er ekki búið að svara og mig langar í ljósi þess að spyrja hv. þingmann hvort hann telji þessi orð umboðsmanns og rannsókn ekki styðja enn betur við það að við getum ekki staðið að því að afgreiða umrædda Menntamálastofnun út úr allsherjar- og menntamálanefnd, því að hér eru menn einmitt að fara aðeins fram úr sér áður en lagaheimildir liggja fyrir.