Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum svarið. Ég tek einmitt undir það því að við erum í þessu tilviki, eins og við höfum ítrekað í nefndinni, líka að fjalla um nemendur sem í hlut eiga og forsjáraðila þeirra. Það skiptir máli að Alþingi, sem fulltrúi fólksins í landinu, fái tækifæri til að taka afstöðu gagnvart því hvernig það kýs að breyta núgildandi lögum.
Rökstuðningurinn í frumvarpinu er í þá veru að verið sé að styrkja kerfið, þ.e. að styrkja ráðuneytin í mannauði og hvað varðar faglega þekkingu. Ég hef velt því fyrir mér og spyr hv. þingmann hvort hann telji að við getum í einhverjum tilfellum verið að styrkja ráðuneytin og veikja stofnanirnar og öfugt. Varðandi þá tilteknu stofnun sem við höfum talað um þá er verið að flytja stofnunina út úr ráðuneytinu og verkefnið sjálft til viðbótar. Það má því alveg spyrja sig hvort ráðuneytið styrkist eitthvað við það að færð séu út úr því verkefni með þessum hætti.
Í lokin langar mig að spyrja hv. þingmann um þennan sveigjanleika, þegar verið er að flytja stofnanir, af því að við þurfum að festa eitthvert ferli í lög: Getur það verið ein leiðin að ráðherra komi hverju sinni með rökstuðningi inn í þingið, með þingsályktunartillögu eða einhverju slíku, þar sem Alþingi getur þá fjallað um það þverpólitískt og nefndir unnið sitt starf eins og vera ber en ekki að einungis sé um að ræða ákvörðun ráðherra, sem hann tekur upp á sitt eindæmi.