Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, ég held að ekki sé gott að það sé — nú hefur umboðsmaður Alþingis auðvitað ákveðið hlutverk þarna eins og bent er á í umsögninni. En hlutverkið sem forsætisráðuneytið ætlar að taka við af samhæfingarnefndinni er að annast ráðgjöf til stjórnvalda um túlkun siðareglna, standa fyrir og efla fræðslu um þær innan Stjórnarráðsins og fylgjast með að þær nái tilgangi sínum.
Forsætisráðuneytið hefur haldið utan um fræðslu, reyndar kvartar starfsfólk undan því að hún sé síst næg. Nú vil ég ítreka það að ég treysti mjög vel forsætisráðuneytinu til þess að skipuleggja og halda utan um þá fræðslu og er viss um að það hefur verið reynt að gera það af fremsta megni, en alltaf má gera betur. Svo kemur nýtt starfsfólk og passa þarf upp á það. En túlkunin, það er mjög til þess fallið að auka traust á stjórnsýslunni að túlkunin sé hjá nefnd af þessu tagi. Hvað ef eitthvað af athöfnum starfsfólks forsætisráðuneytisins, yfirmanna forsætisráðuneytisins, er talið orka tvímælis hvað varðar siðareglurnar? Ætla þeir þá að dæma í eigin sök?
Eins ef fólk vill koma með ábendingar. Þá getur af ýmsum ástæðum — sem á ekki að þurfa að telja upp, það getur verið út af valdamisvægi og ótta fólks við að missa vinnuna eða slíkt — verið mikilvægt að hafa hlutlausan aðila. Auk þess er skýrslan, sem nefndin á að skila forsætisráðherra og fjalla á um á vettvangi þingsins, mjög mikilvæg til að vinna að og stuðla að uppbyggingu á trausti.