Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Nú er ljóst að málið kemur aftur inn til nefndarinnar, það hafa komið fram óskir um slíkt og auk þess liggur fyrir breytingartillaga sem gerir það að verkum að við verðum að taka málið inn aftur.
Ég held að þarna verðum við að treysta reynslu sveitarfélaganna. Ég hef ekki þessa statistík í höfðinu um hve mikil brögð eru að þessu, en þeir þekkja þetta nokkuð. En aftur þarna langar mig til að vekja athygli á ákveðinni þróun sem hefur orðið innan stjórnsýslunnar, opinberrar stjórnsýslu. Það er að dregið hefur úr vægi stéttarfélaganna. Þeim hefur verið ýtt frá borði til að leysa mál sem koma upp, starfsmannamál svokölluð. Í staðinn hafa verið ráðnir svokallaðir mannauðsstjórar. Ég verð alltaf hræddur þegar ég heyri þetta orð og spyr hvern eigi að fara að reka, því að mannauðsstefna hefur fyrst og fremst verið eitthvert regluverk um það hvernig eigi að reka fólk.
Þegar við erum búin að hrinda í gegn kerfisbreytingu af þessu tagi, draga úr vægi og áhrifum stéttarfélaganna sem tryggir það að menn sitji jafnir til borðs til umræðu, þá verður þetta hættulegt. Ef við hefðum sterk stéttarfélög sem störfuðu á málefnalegum grunni við að leysa mál á sanngjarnan hátt væri ég ekki eins hræddur við þetta, vegna þess að í grunninn finnst mér ekki slæm regla að hægt sé að flytja fólk til eftir því sem starfsemi breytist og áherslur og óskir koma fram, þá væri þetta í lagi. Ef ég tryði því að menn væru að gera þetta uppréttir og ekki þvingaðir hefði ég ekkert á móti þessu. En það er í ljósi ábendinga stéttarfélaganna sem ég vil gjalda varhuga við þessu.