144. löggjafarþing — 118. fundur,  3. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[17:30]
Horfa

Frsm. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ítreka þá afstöðu mína að mér finnst mjög mikilvægt að við tökum málið til skoðunar að nýju í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins á þeim forsendum sem hv. þingmaður hefur reifað og ég hef tekið undir hér líka. Ég vonast einfaldlega til þess að menn hafi ekki grafið sig svo djúpt í skotgrafir að fara að líta á það sem eitthvert grundvallaratriði að ná í gegnum þingið núna eða stöðva núna. Við eigum öll að sameinast um að gera þetta eins vel og kostur er. Við erum að tala um stjórnsýsluna og við erum að tala um Stjórnarráð Íslands og við viljum að sjálfsögðu búa vel að því.