144. löggjafarþing — 118. fundur,  3. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[17:51]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið.

Það er kannski þetta ofríki, sem ég hef töluvert rætt um í mörgum ræðum, sem virðist vera ráðherrum þessarar ríkisstjórnar svolítið tamt. Mörg þau frumvörp sem þó hafa verið lögð hér fram frá því ríkisstjórnin tók við hafa miðað töluvert að því að draga til sín vald og minnka þar með eins og ég segi lýðræðislega aðkomu okkar þingmanna að mjög mörgum málum. Mér líkar það ekki, ég tel það ekki af hinu góða. Ég þreytist seint á því að minna á rannsóknarskýrslu Alþingis sem tók meðal annars á þessu og benti á að hér ætti að hugleiða svolítið hvernig hlutirnir voru og breyta þeim. Þetta er ekki í þá átt. Þetta er akkúrat í hina áttina aftur. Ég tel það ekki af hinu góða.

Varðandi þekkingu innan stofnana og ráðuneyta, auðvitað má segja að það geti á báða vegu verið eins og ég sagði í ræðu minni, en það dugar ekki sem rökstuðningur einn og sér að halda því fram að þetta sé til að styrkja mannauðinn eða til að auka þekkingu og færni ef verið er að taka það á sama tíma út úr ráðuneytunum. Mér finnst vanta upp á að það sé skýrt betur.

Ég sé líka að minni hluti og meiri hluti hefur ekki skilið, eða túlkar það að minnsta kosti ekki með sama hætti þegar gerð er grein fyrir flutningum starfsmanna hvernig lögin hafa virkað fram til þessa, það er líka eitt. Ég held að vert sé að skoða mörg álitaefni aftur.