144. löggjafarþing — 118. fundur,  3. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[18:47]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Þar er ég sammála og til þess erum við nú hér, að veita aðhald, ekki mun af veita. Hafi hrunið og öll þau ósköp kennt okkur eitthvað þá er það að verða aldrei jafn samdauna og sofandi gagnvart ástandi eins og ríkti á árunum þar á undan og láta ljúga því að okkur að eitthvað sem er fullkomlega galið sé gott. Þess vegna þarf alltaf að spyrja hinna gagnrýnu spurninga.

En ég sem er áhugamaður um dreifingu opinberra starfa — er með það í blóðinu auðvitað og ræði það oft við mitt fólk vítt og breitt um landið — er fyrst fremst hryggur yfir þessu máli. Það er vegna þess að ég tel að forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnin hafi með þessari framgöngu komið óorði á mjög góða hugsun og eðlilega; þ.e. að auðvitað sé hægt að ákveða að færa til þungamiðju af þessu tagi en það þurfi að gera það á vitrænan hátt.

Ég segi alveg eins og er, ég hef ekki endilega verið að tala fyrir því að það eigi að vera algerlega lögbundið alls staðar hvar stofnanir eru, en mér sýnist að í ljósi þessarar reynslu sé óumflýjanlegt að lögbinda ferlin og undirbúning og hvernig hagsmunum starfsmanna sé borgið detti mönnum slíkt í hug.