144. löggjafarþing — 119. fundur,  4. júní 2015.

framhald þingstarfa.

[10:21]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegi forseti. Mér finnst það athyglisverð kenning að mögulega sé það bann við tóbaksreykingum innan húss sem geri að verkum að ástandið í þinginu hafi versnað til muna, að það séu engin reykfyllt bakherbergi lengur.

Ég er sammála þessum tóni í ræðu hæstv. ráðherra. Mér finnst það vera augljóst á þessum tímapunkti og oft áður að staða forseta Alþingis þarf að vera miklu sterkari, hann þarf að vera miklu virkari í því að leysa þessi mál. Hann ber ábyrgð á starfsáætlun. Hvaða þýðingu hefur starfsáætlun? Það eru margar stofnanir sem eru með starfsáætlun, skólar til dæmis, og það er mjög mikilvægt að starfa samkvæmt henni. Sumarið á að nýtast til að undirbúa næsta þing og svoleiðis. Mér finnst skorta virðingu fyrir þessu og mér finnst að forseti Alþingis eigi að leika þarna lykilhlutverk.

Vissulega einkenna mjög stór ágreiningsmál stöðuna núna. Mér finnst að það eigi að vera málskotsréttur minni hluta og þjóðin eigi að fá að skera úr um svoleiðis mál, ég held að það mundi bæta úr. Svo eru mörg mál sem koma of seint, (Forseti hringir.) eru ekki komin, er það ekki ákveðinn ósiður sem þarf að uppræta? Þurfum við ekki bara að hefja mjög yfirgripsmikið og gott samtal um það hvernig við eigum að bæta störf Alþingis?