Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög umhugsunarvert og því miður er það þannig að starfsmaðurinn er gjarnan minni máttar í dæmum af þessu tagi. Ég get séð það fyrir mér að starfsmaður, ef lagt er til að hann flytji úr stofnun í ráðuneyti eitthvað svoleiðis, sjái sér í raun ekki fært að segja nei; að hann hugsi með sér: Þá get ég staðið frammi fyrir því að vera hugsanlega látinn fara eða ég er sett út í horn og svona. Því miður er það þannig að fólk er óöruggt í slíkum samtölum.
Þá segir hv. þingmaður: Það þarf að styrkja stöðu stéttarfélaganna þannig að stéttarfélögin geti þá staðið skýrar með starfsmönnum. Þá hlýtur maður að skilja það þannig að það snúist kannski um að standa með einstökum starfsmanni í eitthvert einstakt sinn, ekki eins og þingmaðurinn talar um þegar átti að flytja Landmælingar — þá var samtal á milli þeirra sem valdið höfðu og starfsmannafélagsins um að gera hlutina öðruvísi.
Hvernig sér þingmaðurinn fyrir sér að stéttarfélögin geti komið inn fyrir einstaka starfsmenn? Ef einstakur starfsmaður stendur fyrir því að það eigi að flytja hann, hvernig getur stéttarfélagið komið inn í slík mál?