Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Það er nákvæmlega þannig, það vantar kannski bakgrunninn, hvað þýðir þetta? Upphaflega var hugmyndin náttúrlega sú að það hefði ekki verið formgert nægilega vel það sem um var fjallað fyrir hrun í efnahagsmálunum og þar af leiðandi þegar menn ætluðu að grípa til og skoða hvar ákvarðanir voru teknar og hvernig o.s.frv. þá voru jafnvel ekki til góðar og vandaðar fundargerðir frá ákveðnum fundum. Að því leyti er maður náttúrlega mjög sáttur við að sett sé regla um það hvað er skráð og hvernig. Það er að vísu annað ákvæði í þessum lögum þar sem verið er að breyta úr formlegu yfir í mikilvægt, og þá má líka spyrja: Hvað er á bak við það?
En það er ástæða til að velta líka vöngum yfir því að skipaðir eru ýmsir aðrir hópar. Ég hef velt mikið fyrir mér til dæmis hagræðingarhópnum sem er skipaður sem ráðgjafarhópur fyrir ríkisstjórn og er með tengingu í gegnum aðstoðarráðherra meira að segja og ekkert athugavert í sjálfu sér við að slíkur hópur sé til og komi með tillögur og annað slíkt, en mér finnst oft verið að vitna í að hagræðingarhópurinn hafi komist að einhverri niðurstöðu. Alþingi hefur aldrei fjallað um niðurstöður þessa hagræðingarhóps. Það er eingöngu þegar málið kemur inn sem nýtt þingmál eða eitthvað slíkt, en samtímis er einhver listi til, sem við könnumst báðir við, sem varð til sem hugmyndabanki, hann er allt í einu orðinn að tillögum. Mig langar að heyra aðeins sjónarmiðin varðandi það.
Eins líka sjónarmiðið gagnvart 1. gr. Það sem gerir þetta frumvarp svolítið erfitt í umræðu er: Hver er tilgangurinn með því? Af hverju verður þetta frumvarp til? Er það virkilega þannig að það sé bara fiskistofumálið sem er verið að reyna að leysa með einhverjum almennum hætti, eins og kemur fram í 1. gr., þ.e. með því að opna heimild á það að ráðherra megi ráða aðsetri stofnunar og það sé eini tilgangurinn? Hitt sé allt eitthvað sem er tekið með til að fegra ásýndina á frumvarpinu. Það læðist að manni sá grunur og hann er óþægilegur.