144. löggjafarþing — 119. fundur,  4. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[16:39]
Horfa

Frsm. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður vék að ræðu minni og ég ætla að fara örfáum orðum um athugasemdir sem hún gerði þar að lútandi.

Hún sagði að ég talaði um árás á opinbera starfsmenn. Það hef ég aldrei gert. Ég talaði um ákvarðanir sem teknar voru af hálfu fjárlaganefndar á fyrsta starfsári þessarar ríkisstjórnar um reglustrikuniðurskurð í Stjórnarráðinu sem orsakaði handahófskenndar uppsagnir, ómálefnalegar handahófskenndar uppsagnir. Ég gagnrýndi það.

Hv. þingmaður sagði að Samfylkingin og Vinstri hreyfingin – grænt framboð vildu þenja út ríkið og fjölga ríkisstarfsmönnum. Það væri sérstakt markmið af okkar hálfu. Þetta er rangt. Við viljum efla opinbera starfsemi, við viljum efla velferðarþjónustuna en við höfum verið reiðubúin að taka opinbera þjónustu til endurskoðunar, skipulag hennar, og dæmin sýna fram á það. Við endurskipulögðum skattinn, svo að dæmi sé tekið, við endurskipulögðum skipulag lögreglunnar, svo að annað dæmi sé tekið, við endurskipulögðum sýslumannsembættin, svo að enn sé tekið dæmi, og við höfum verið að taka alla stjórnsýsluna til stöðugrar endurskoðunar. Opinber stjórnsýsla eins og öll starfsemi, fyrirtæki eða rekstur hjá hinu opinbera, á að sjálfsögðu að vera í stöðugri endurskoðun og við höfum viljað stuðla að því.

Hv. þingmaður vék að réttarstöðu opinberra starfsmanna og sagði að hún væri miklu sterkari en gerðist á almennum markaði, að þar væri hægt að reka fólk án málefnalegra aðstæðna. Er hv. þingmaður að segja að það eigi að vera hægt að reka opinbera starfsmenn án málefnalegra ástæðna? Er hún að segja það? Ég vil fá það upplýst hvort það sé sérstakt keppikefli Framsóknarflokksins og formanns fjárlaganefndar að svo verði gert, að lögum verði breytt að þessu leyti.

Varðandi ráðherranefndir þá gagnrýndi ég þær forsendur sem lagabreytingarnar voru gerðar á, að þær væru ekki nægilega vel grundaðar. Að ekki eigi að vera hægt að setja á fót nýjar stofnanir (Forseti hringir.) — það vill nú svo vel til að við höfum verið að gagnrýna það að 6. gr. þessa frumvarps, sem gerir ráð fyrir (Forseti hringir.) breytingum á 17. gr. núverandi laga, opni á slíkt (Forseti hringir.) og við erum að hvetja til málefnalegrar umræðu um alla þessa þætti. Ég hvet menn til þess að hefja sig upp (Forseti hringir.) úr flokkspólitískum farvegi í þessari umræðu.

(Forseti (ÓP): Forseti vill hvetja hv. þingmenn til að halda sig við tímamörk.)