144. löggjafarþing — 119. fundur,  4. júní 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[16:54]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bara svo að fyrstu spurningu sé svarað, þingmaðurinn spyr að því hvort ég ráði hér í þingsal og hvort ég ráði því hvað þingmenn segja úr þessum ræðustól. Því ber að sjálfsögðu að svara neitandi því að svo er ekki, enda samkvæmt stjórnarskrá málfrelsi í þessum ræðustól og það ætti hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon að vita sem hefur setið manna lengst á þingi.

Ég var að gantast með það í frammíkalli að mig dauðlangaði til að ræða Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins við hv. þm. Ögmund Jónasson. Ef hann heldur ellefu ræður mundi ég líklega ná 22 í andsvari. En ég veit ekki hvort ég get verið allan tímann hér í þingsal meðan þingmaðurinn heldur ræður sínar því að mælendaskrá er löng í þessu máli, en við skulum sjá til, ég ætla að gera mitt besta.

Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon fór yfir siðaregluákvæði í frumvarpinu, taldi slæmt að verið væri að færa þetta yfir til forsætisráðuneytisins. Forsætisráðuneytið á að gefa stjórnvöldum ráð um túlkun siðareglna þegar eftir því er leitað, stendur fyrir fræðslu innan Stjórnarráðsins og fylgist með að þær nái tilgangi sínum. Til að tryggja samræmi við störf umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar skal ráðuneytið hafa reglulegt samráð við þau embætti.

Ég vil benda þingmanninum á að lesa greinargerð frumvarpsins um 8. gr. en þar er farið mjög vel yfir þetta. Mér sýnist þessi mál vera komin á ágætan rekspöl. Ríkisstjórnin fer eftir siðareglum fyrri ríkisstjórnar og því hlýt ég að spyrja sjálfa mig og þá þingmenn sem hér eru inni: Reyndust þær siðareglur ekki nógu góðar? Eru þær meingallaðar? Komu fram einhverjir rosalegir gallar á þeim þegar síðasta ríkisstjórn var við völd? Hvert er málið?