Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Við erum hér áfram í 2. umr. um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands. Mig langar í þessari annarri ræðu minni um þetta mál að einbeita mér að 8. gr. frumvarpsins en hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Forsætisráðuneytið gefur stjórnvöldum ráð um túlkun siðareglna þegar eftir því er leitað, stendur fyrir fræðslu um þær innan Stjórnarráðsins og fylgist með að þær nái tilgangi sínum.“
Þessu höfum við í minni hlutanum hér á Alþingi mótmælt og teljum að þarna sé ekki verið að koma með góða eða gagnlega lagabreytingu. Nú er það svo að almenningur á Íslandi ber ekki mikið traust, hvorki til Alþingis né stjórnvalda í heild sinni, og ég held að það eitt og sér sé mjög slæmt og grafi undan tiltrú fólks á lýðræðinu. Af þeirri ástæðu tel ég að hér sé um stórmál að ræða og þess vegna verðum við að ræða mjög ítarlega um það hvað felst í þessu frumvarpi.
Það er nefnilega ekki bara 1. gr., þar sem kveðið er á um að ráðherra geti ráðið því hvar stofnanir sem undir hann heyra hafi aðsetur, sem ég tel að beri að varast. Það hefur líka verið bent á hér í umræðunni að eins séu þættir í 8. gr., sem ég nefndi hér áðan, sem og í b-lið 10. gr. sem séu til þess fallnir að færa mikil völd til forsætisráðherra. Ég tel það ekki til bóta því að traust á stjórnsýslunni og það að almenningur hafi trú á kerfinu krefst þess að hér séu virkar aðgerðir til að sýna og tryggja að unnið sé gegn hvötum til spillingar. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hafa það í huga. Það eru alveg sérstakir hvatar sem eiga við í okkar litla samfélagi; það er einmitt fámennið, hættan á því að vina- eða ættartengsl, formleysi og skortur á fagmennsku geti orðið til að gera lítið úr kvöðum sem fylgja embætti og ábyrgð. Þetta er náttúrlega stórmál út af fyrir sig.
En til þess að reyna að gera eitthvað í málinu var komið á fót samhæfingarnefnd um siðferðileg viðmið í stjórnsýslunni. Hún var upphaflega sett á fót með lögum nr. 86/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, og þessi ákvæði um siðareglur og samhæfingarnefndina voru svo tekin nær óbreytt upp í lög nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Í þessari siðanefnd áttu sæti sjö einstaklingar og hún var skipuð til þriggja ára.
Nú er það svo að hæstv. forsætisráðherra hefur ekki skipað nefndina aftur eftir að síðasta skipun rann úr gildi haustið 2013. Mig langar aðeins að vitna í fyrstu ársskýrslu þessarar samhæfingarnefndar, sem ekki er lengur starfandi, en hún kom út 4. maí 2012. Í lið a í inngangi skýrslunnar segir að þau verkefni sem nefndin hafi á sinni könnu hafi verið, með leyfi forseta:
„að stuðla að því að siðferðileg viðmið séu í hávegum höfð í opinberum störfum og veita stjórnvöldum ráðleggingar um ráðstafanir til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og spillingu.“
Þessi drög að siðareglum voru á sínum tíma kynnt á vef Stjórnarráðsins og óskað var eftir athugasemdum við þau. Þegar nefndin fór yfir þær athugasemdir kom í ljós að skilningur fólks á siðareglum, tilgangi þeirra og hlutverki, var mjög misjafn og því ljóst að í innleiðingarferli siðareglna yrði að gæta að því að skýra bæði notkun og markmið þeirra mjög tryggilega. En ég held að hér séum við ekki búin að klára. Mitt mat er það að við séum bara í miðju ferli sem ekki hefur verið klárað, því að það kemur einnig fram í þessari skýrslu að tilgangurinn hafi ekki verið að búa til nýjar íþyngjandi reglur sem móta hegðun starfsfólks á svipaðan hátt og lagareglur þó að þessar siðareglur hefðu ekki gildi laga og tekið fram að siðareglur leysa aldrei dómgreind fólks af hólmi en séu til þess fallnar að veita stuðning þegar ráða þarf fram úr vandasömum málum eða átta sig á því hvaða meginsjónarmið eigi að ríkja.
Með því frumvarpi sem hér liggur fyrir er hæstv. forsætisráðherra að leggja þessa siðanefnd, þessa samráðsnefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna, niður en taka verkefni hennar að sér sjálfur, þ.e. til sín í forsætisráðuneytið. Ég hef af því þungar áhyggjur. Ekki er þar með sagt að forsætisráðherra fari að misbeita valdi sínu en hættan er til staðar. Það er verið að opna glufu, að því er ég tel, sem getur ýtt undir hvata sem geta leitt til spillingar. Það tel ég að sé eitthvað sem við hér á Alþingi verðum að standa algerlega gegn en standa hins vegar með hagsmunum almennings sem eru að mínu mati þeir að tryggja að valdhafar hverju sinni geti ekki misbeitt valdi sínu. Við eigum einmitt að tala fyrir því hér að til séu leiðir til að styrkja lýðræðislega stjórnarhætti. Hér er nákvæmlega verið að fara í öfuga átt með það með því að leggja til að leggja niður samhæfingarnefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna en færa það til hæstv. forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins; að það sé hans hlutverk að gefa stjórnvöldum ráð um hvernig túlka eigi siðareglurnar þegar eftir því er leitað.
Þótt ekki væri nema út af þessari 8. gr. — þótt við mundum líta fram hjá öllum hinum göllunum sem eru á frumvarpinu og ég fór betur yfir í fyrri ræðu minni — þá tel ég engu að síður að þetta sé feikinóg til að við samþykkjum ekki þessi lög en förum frekar í gang aftur með vinnu sem miðar að því að skipa nýja siðanefnd á breiðum og faglegum grunni sem verði þá stjórnsýslunni til ráðgjafar um það hvernig siðferðileg viðmið skuli vera.