um fundarstjórn.
Herra forseti. Í fyrsta lagi kemur hér fram skýr vilji til að ná samstöðu um þetta mál og ég tel að það sé mjög mikilvægt, þetta sé mál þeirrar tegundar, þess eðlis, að það sé mikilvægt að það standi til langrar framtíðar og sé gert að lögum með breiðri samstöðu. Þar fyrir utan verð ég að viðurkenna að ég reyni nú sem minnst að hafa áhrif á það hvernig nefndir lenda sínum málum. Menn verða innan nefndanna að finna lendingu í því hvernig mál eru endanlega afgreidd.
Um þetta mál vil ég segja: Ég lagði það fram fyrir ári til kynningar og kom svo með það strax í haust. Ég hafði vonast til þess að þegar komið yrði fram í júní 2015 hefði þingveturinn dugað til að klára málið. En það er ekki búið að klára það samtal sem hv. þingmaður er að vísa til, um það hvort við finnum einhvern flöt á því að gera samkomulag um að ná betur saman um þetta og leiða þetta í lög síðar á þessu ári. Meðan það samtal er í gangi þá útiloka ég ekki neitt.