ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa fyrirspurn. Svo það sé sagt í byrjun er málið að mínu mati hálffallið á tíma vegna þess að nú er unnið að því í ráðuneytunum að leggja lokahönd á fjárlögin. Nú er þegar kominn 5. júní og við erum að loka þessu máli núna. Þetta er frumkeyrsla á þessu formi varðandi ríkisfjármálin því að eftir nokkrar vikur, annan þriðjudag í september, verður lagt fram hér sem þingskjal nr. 1 fullbúið fjárlagafrumvarp fyrir árið 2016.
Ég harma að ástandið í þinginu skuli hafa verið með þessum hætti á þessu vorþingi eins og það hefur birst landsmönnum og öll þessi brýnu mál setið á hakanum á móti.
Varðandi það sem þingmaðurinn fór yfir um eldri borgara og vísaði í grein um almannatryggingar er það rétt að bætur hækka samkvæmt lögum þar um og þau eru tengd vísitölu neysluverðs. Ég vil rifja það upp með þingmanninum að hér var á síðasta fjárlagaári gerð ofáætlun varðandi þennan lið. Það varð mikil umræða um það vegna þess að þegar vísitala neysluverðs var síðan reiknuð út var skorið niður af því að um ofáætlun hafði verið að ræða. Það var þá það fært til baka. Þessir hópar töldu sig eiga rétt á því fyrst ákveðin upphæð og prósenta komu fram í frumvarpinu. Ég tel nú bara að hér sé um varfærnissjónarmið að ræða en ekki mistök. Áætlanir eru áætlanir og við vitum að oft og tíðum er erfitt að sjá fyrir óorðna hluti, eins og ég fór yfir í framsöguræðu minni, bæði varðandi tekjuauka og útgjaldaauka.