144. löggjafarþing — 120. fundur,  5. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[12:50]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég vil gjarnan fá svar við seinni spurningunni og ég vil líka spyrja annars. Á bls. 35 er talað um plön ríkisstjórnarinnar í skattalækkunum, að þau muni kosta 2 milljarða á næsta ári og fara stigvaxandi upp í 6 milljarða kr. á árinu 2019. Síðan, ekki mörgum vikum eftir að þetta er lagt fram, kemur ríkisstjórnin með aðgerðir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og þá segir hér:

„Með aðgerðunum mun heildarlækkun á tekjuskatti einstaklinga því nema um allt að 16 milljörðum króna á kjörtímabilinu.“

Hér kemur stefna, áætlun, plan sem lifir í nokkrar vikur og þá er ríkisstjórnin komin með nýtt plan. Það eru ekki lengur 6 milljarðar, við erum að tala um 16 milljarða. Ef við getum aldrei hugsað lengra en hálft eða eitt ár fram í tímann getum við alveg gleymt þessum opinberu fjármálum vegna þess að þau byggja á langtímahugsun og stefnumótun. Það er grundvöllurinn í þeim. Er það ásættanlegt að ríkisstjórnin viti ekki þegar hún vinnur þessa áætlun (Forseti hringir.) hvað hún ætlar að setja mikla peninga í skattalækkanir?