144. löggjafarþing — 120. fundur,  5. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[12:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er farin að halda að þó að hv. þingmaður hafi setið hér í þingsalnum hafi hún ekki hlustað á framsöguræðu mína þar sem ég fór nákvæmlega yfir akkúrat það sem þingmaðurinn spurði mig um. Fyrst varðandi útgjaldasvigrúmið sem talað var um hér í fyrra andsvari, þá er það svo að ég vona að þingmaðurinn átti sig á því hver staðan í samfélaginu er. Það eru nánast allir verkfallsbærir einstaklingar í landinu nýkomnir úr verkfalli, í verkfalli eða að fara í verkfall. Það eru alveg gríðarleg útgjöld sem ríkissjóður stendur frammi fyrir, auk náttúrlega Samtaka atvinnulífsins, að uppfylla þær kröfur sem er verið að fara fram með þannig að ég bara vonast til að þingmaðurinn hafi skilning á því.

Ég fór jafnframt yfir það útspil ríkisstjórnarinnar í aðdraganda kjarasamninga sem náðust á almenna vinnumarkaðnum og fór yfir það að þetta plagg var skrifað í mars og lagt fram í byrjun apríl. Ég fór yfir það að það er 5. júní og ég fór yfir það hvers vegna þetta er ekki (Gripið fram í.) orðið að þingsályktun. Þetta er óvissa, þetta er þingsályktunartillaga, þetta er spá. Þannig stendur það og ég fór yfir það í framsöguræðu minni.