144. löggjafarþing — 120. fundur,  5. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[14:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ef hv. þingmaður hefur áhuga á því að bæta stöðu ríkissjóðs enn frekar og ganga hraðar fram í lækkun skulda og ná meiri hagræðingu í rekstri ríkisins þá fagna ég því. Ég fagna því ef Samfylkingin er komin á þann stað, það væri mjög vel, ég tala nú ekki um ef svo væri um fleiri flokka í stjórnarandstöðunni.

Ég hjó eftir því að hv. þingmaður sagði, eins og margir þingmenn stjórnarandstöðunnar tönnlast á, að þessi ríkisstjórn sé fyrst og fremst að hjálpa þeim sem eru ríkir. Ég vil spyrja hv. þingmann hvað hún eigi við.

Hv. þingmaður veit nákvæmlega hvaða breytingar hafa orðið á fjárlögunum eftir að núverandi ríkisstjórn tók við. Mest áherslan hefur verið lögð á að auka framlög til heilbrigðismála. Má þar til dæmis nefna að búið er að auka framlög til bæði Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri um rúmlega 20%. Ef við tökum bara Landspítalann þá væru framlögin, ef við hefðum miðað við hefðbundnu neysluvöruvísitöluna, bundið framlögin við það, 5,6 milljörðum lægri. Ef við hefðum bundið okkur við launavísitöluna væru framlögin til Landspítalans 3 milljörðum lægri. Hv. þingmaður veit þetta.

Hv. þingmaður veit að við höfum verið að vinna í því að forgangsraða með því að taka fjármuni annars staðar að til þess að setja í heilbrigðismálin og einnig var fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar að koma með, á sínu fyrsta sumarþingi, 8.000 milljónir til að hækka framlög til lífeyristrygginga. Ég held að það sé misskilningur að sjúklingar landsins séu fyrst og fremst hálaunafólk. Ég held að sjúkdómar leggist þvert á móti jafnt á alla þjóðfélagshópa og sömuleiðis tekjuhópa.