144. löggjafarþing — 120. fundur,  5. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[14:11]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg ljóst að það hefur verið forgangsraðað í þágu þeirra sem hafa meira á milli handanna. Það er alveg rétt að það skiptir minna máli fyrir ríkustu 30% að fá 4 millj. kr. í hendurnar, hvert heimili fyrir sig, en samt er staðreyndin sú að 64% af verðtryggðum skuldum í húsnæði landsmanna eru hjá þeim 30% sem tilheyra ríkasta hópnum. Samkvæmt þeim prósentureikningi væri 51 milljarður af 80 milljörðum að ganga til þessa fólks. Eins og hv. þingmaður sagði sjálfur; þá munar þá minna um það en hina sem hafa minna á milli handanna og fá minna í sinn hlut.

Bæði raforkuskattur og auðlegðarskattur voru tímabundnir, en þeir voru samt framlengdir á síðasta kjörtímabili. Staðan var metin í samfélaginu, hvort nauðsynlegt væri að framlengja þeim eða ekki. Þeir voru báðir framlengdir einu sinni. Ég hef sagt að ég hefði viljað breyta auðlegðarskattinum, það er eignarskattur og maður vill frekar taka tekjur af eignum til ríkissjóðs en beinan eignarskatt. En ég hefði aldrei sagt: Ókei, við skulum lækka auðlegðarskattinn, en skerða kjör langtímaatvinnulausra í leiðinni og gera þær fáránlegu breytingar sem gerðar voru með síðustu fjárlögum, bæði fjöldatakmarkanir í framhaldsskólum og allt það sem gert var til þess að skera niður og þrengja að fólki.

Þó svo að ríkisstjórnin hafi sett aukið fjármagn til heilbrigðismála þá er það bara algjörlega nauðsynlegt og það þarf að gera betur. Til tryggingamála þurfti að leggja peninga vegna þess að öldruðum fjölgar. Þó það nú væri.