ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegur forseti. Jú, það hefði verið eðlilegt og eins og við vitum þá kom hún allt of seint fram — síðasta dag samkvæmt starfsáætlun, var það ekki? Það er einmitt það sem er svo mikilvægt að ef við erum að reyna að sjá fram í tímann, móta stefnu og halda uppi aga verðum við að fylgja einhverju plani. Þá þýðir ekki að vera að henda samgönguáætlun inn á síðasta degi.
Vissulega er þetta fyrsta sinn sem menn reyna þetta og það er virðingarvert, svo að maður sé nú ekki allur í neikvæðninni. Það er vissulega gott að sjá að þetta plagg er þó til en það þarf að undirbyggja það svo miklu betur. Þetta plagg á ekki að vera til þess eins að sefa okkur hér í þinginu og segja: Ja, við komum með áætlun. Hún hjálpar ekki neitt ef hún er ekki vandlega unnin og byggir á gögnum.
Eins og ég nefndi ræðu minni þá er málið varla komið fram þegar komin eru útgjöld af hálfu ríkissjóðs sem eru 10 milljarðar umfram þetta.