144. löggjafarþing — 120. fundur,  5. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[16:42]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Það er gaman að leika sér með tölur og hugsa upphátt. Það eru þrjú stór verkefni fram undan hjá íslensku þjóðinni. Til skemmri tíma er það bygging nýs spítala. Til lengri tíma er það að takast á við breytta aldurssamsetningu með mikilli fjárfestingu í heimilum, t.d. hjúkrunarheimilum fyrir aldraða og þeirri þjónustu sem það kallar á. Síðan þurfum við að slá verulega undir lífeyriskerfið til að mæta skuldbindingum framtíðarinnar.

Það sem ég er að velta fyrir mér er eftirfarandi: Ef það tekst á grundvelli þeirra aðgerða sem fyrri ríkisstjórn greip til gagnvart kröfuhöfum að lækka skuldir ríkisins um 400–500 milljarða, ef ný ríkisstjórn fer síðan í kannski helftina af þeim aðgerðum sem hún greip í til að auka tekjur ríkissjóðs á síðasta kjörtímabili og maður leggur það saman við áætlaðan afgang af ríkissjóði á næstu tíu árum sjá menn kannski framan í það að þeir geta (Forseti hringir.) lækkað skuldir ríkisins um kannski 1 þús. milljarða á næstu 10–12 árum. Það þýðir aukið svigrúm vegna minni vaxtaútgjalda ríkissjóðs sem fara langt með að standa undir kostnaði við þessi verkefni.