144. löggjafarþing — 120. fundur,  5. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[17:15]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Þessi áætlun er svo gróf að það eru einhverjar meginstærðir en ekki hagræn skipting sem hald er í. Þeir sem græða, það er alveg augljóst, eru þeir sem hæstar hafa tekjurnar, mestar eiga eignirnar og hafa fengið sérstakt leyfi til að fénýta auðlindirnar. Þeir sem verða harðast úti mundi ég segja að væru lífeyrisþegar, sjúklingar og leigjendur. Það er sá hópur sem þessi ríkisstjórn virðist telja sérstaklega vel til þess fallinn að bera uppi draumsýn hennar um lágskattaland og hálfeinkavætt mennta- og heilbrigðiskerfi.

Hjá millitekjuhópunum eru boðaðar einhverjar skattalækkanir en þar má segja að þeir komi best út sem eru með hvað hæstar tekjurnar. Vonandi fá millitekjuhóparnir kjarabætur. Ef þessu verkfalli lýkur er ekki verið að draga úr útgjöldum þessa fólks vegna menntunar barna, heilbrigðisþjónustu eða húsnæðis ef það er á leigumarkaði. (Forseti hringir.) Ég verð að halda áfram í síðara andsvari.