144. löggjafarþing — 120. fundur,  5. júní 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[18:00]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi háhraðatengingar, uppbyggingu innviða og samgöngumál í landinu, jafnt á láði, legi og í lofti eins og sagt er, er ég ekki bjartsýn á að af mörgum brýnum framkvæmdum verði á næstu fjórum árum. Það má segja að margt gott hafi komið fram í samgönguáætlun og ýmislegt er í fjarskiptaáætlun en ég sé ekki að þeir fjármunir muni fylgja í fjárlagagerð þessara næstu ára, ekki miðað við undangengin tvenn fjárlög sem þessi ríkisstjórn hefur lagt fram. Varðandi landsbyggðarframhaldsskólana og þau háskólasetur sem eru vítt og breitt um landið og hafa skipt sköpum fyrir þær byggðir (Forseti hringir.) er ekkert í hendi sem tryggir fjármagn svo hægt sé að reka þessar menntastofnanir eðlilega.