ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Fyrst ætla ég aðeins að tala um að það er sífellt verið að kalla á ráðherra inn í umræðuna þegar ráðherrar eru búnir að afhenda þinginu sín mál. Það er á ábyrgð þingsins að ljúka málum. Ráðherrarnir koma hingað til að mæla fyrir málum og afhenda svo þingmönnum málið og viðkomandi þingnefndum þannig að það sé sagt fyrst.
Ég er bara fyrst núna að heyra af þessum fundi hjá Bjartri framtíð og finnst skrýtið að þingflokksformaður Bjartrar framtíðar hafi ekki farið fram á það að þingfundur stæði ekki á meðan þessi flokksfundur hjá þeim stæði yfir (Gripið fram í: Það var óskað …) þannig að ég tek undir með stjórnarandstöðunni, það er kannski ekki alveg viðeigandi að þingmenn heils flokks vanti í umræðuna vegna svo stórs eða umfangsmikils fundar. Ég lýsi yfir stuðningi við stjórnarandstöðuna.