kynning á frumvörpum um afnám gjaldeyrishafta.
Herra forseti. Ég verð að taka undir með hv. þingmanni sem talaði á undan mér. Það er ekki eins og við séum að tala um eitthvert venjulegt mál þegar kemur að því sem hér var kynnt í morgun. Það var ekki fyrr en eftir mikla eftirgangssemi í gærkvöldi og aftur í morgun hv. þingflokksformanns Vinstri grænna, Svandísar Svavarsdóttur, sem loks hafðist að haldinn var þessi fundur, með eiginlega mjög skömmum fyrirvara eins og hér kom fram. Tíu mínútum áður en fundurinn hófst barst tilkynning um að hann yrði haldinn. Í ljósi þess að málið er stórt og umfangsmikið gafst ekki færi á að spyrja nema örfárra spurninga vegna þess að megintíminn fór auðvitað í að kynna málið á þeim 25 mínútum sem við höfðum fram til þess að skrautsýningin hæfist í Hörpu eins og þessari ríkisstjórn virðist vera tamt að gera. Þegar við horfum til þess að klára þetta þing er mjög mikilvægt að ríkisstjórnin geri (Forseti hringir.) sér grein fyrir því að hún þarf líka á stjórnarandstöðunni að halda við það að ljúka þeirri dagskrá sem fram undan er.